Ráðgjöf og fræðsla 4u
Nýtt fyrir jólin: Er nálgast jólin, litabók með jólavísum. 1.500 kr.Skoða bókina →

Skyndihjálp · Fræðsla · Ráðgjöf

Fræðsla sem undirbýr fólk fyrir það sem skiptir máli

Námskeið, fyrirlestrar, námsefnisgerð og ráðgjöf fyrir einstaklinga, aðstandendur, starfsfólk, fyrirtæki og stofnanir, byggð á áralangri reynslu úr bráðaþjónustu, björgunarstarfi, þroskaþjálfun og ráðgjafarstarfi. Hagnýt fræðsla sem nýtist strax, hvort sem er á vinnustaðnum, í skólanum eða heima.

Námskeið og þjónusta

Námskeið, fræðsla og ráðgjöf

Fyrir einstaklinga, aðstandendur, skóla, fyrirtæki og stofnanir. Við komum til ykkar og sníðum efnið að hópnum. Hafið samband til að fá tilboð og finna tíma.

  • Sálræn skyndihjálp

    Hvernig styðja má fólk sem hefur orðið fyrir áfalli eða er í miklu uppnámi. Okkur finnst þetta eitt mikilvægasta námskeiðið sem við bjóðum, því öll getum við lent í aðstæðum þar sem fyrstu viðbrögð okkar skipta sköpum fyrir líðan annarra.

  • Fyrirlestrar og fræðsla

    Um hegðun, þroska og líðan, um sjúkraflutninga og bráðaþjónustu og um rétt viðbrögð þegar eitthvað kemur upp á, fyrir skóla, foreldrahópa, vinnustaði og heilbrigðisstarfsfólk.

  • Skyndihjálp

    Fyrstu viðbrögð við slysum og veikindum, endurlífgun og notkun hjartastuðtækis, fyrir almenning, vinnustaði og heilbrigðisstarfsfólk.

  • Sérsniðin námskeið og námsefnisgerð

    Námskeið, námsefni, verkefni og æfingar sniðin að þörfum hvers hóps, til dæmis endurmenntun heilbrigðisstarfsmanna.

  • Ráðgjöf

    Ráðgjöf fyrir einstaklinga, aðstandendur, skóla og vinnustaði, meðal annars hegðunarráðgjöf og ráðgjöf við uppsetningu fræðslu og þjálfunar.

Dæmi um efni fyrirlestra

  • Erfið og krefjandi hegðun
  • Ofbeldi nemenda
  • Uppeldi barna
  • ADHD
  • Einhverfa
  • Kvíði
  • Úlfatíminn
  • Skipulögð kennsla
  • Sjónrænt skipulag
  • Hlutverk foreldra í þroska barna sinna
  • Fyrsta hjálp og endurlífgun
  • Sjúkraflutningar og bráðaþjónusta
  • Endurmenntun heilbrigðisstarfsfólks

Og ýmis önnur málefni sem við erum beðin um. Hafið samband og við finnum efni sem hentar ykkar hópi.

Okkar sýn

Við vitum af eigin reynslu hversu djúp áhrif áföll geta haft og hversu miklu máli það skiptir að vera mætt af skilningi, virðingu og öryggi. Sú reynsla mótar alla okkar fræðslu. Við leggjum áherslu á tengsla- og áfallamiðaða nálgun og teljum að allir eigi að kunna að veita sálræna skyndihjálp.

Rafrænt efni

Rafræn námskeið og efni

Væntanlegt

Rafræn námskeið

Upptekin námskeið sem þú horfir á þegar þér hentar, heima eða í vinnunni. Þú kaupir aðgang og hann er opinn í ákveðinn tíma eftir skráningu.

Viltu fá að vita þegar fyrsta námskeiðið opnar? Sendu okkur línu á [email protected].

Forsíða bókarinnar Er nálgast jólin: jólasveinn kíkir inn um glugga á barn sem sefur

Er nálgast jólin – litabók með jólavísum

Þrettán jólasveinar, hver með sína vísu og sinn dag. Barnið litar sveininn kvöldið áður en hann kemur og skrifar svo hvað hann gaf í skóinn. 17 síður á PDF, prentast á heimilisprentara.

1.500 kr.

  1. Millifærðu 1.500 kr. á reikning 0133-26-006769, kt. 450722-1540.
  2. Settu netfangið þitt í skýringu.
  3. Bókin kemur í tölvupósti samdægurs.

Spurningar um bókina eða leikskólaleyfi: [email protected]

Um okkurHver erum við?

Fólkið á bak við Ráðgjöf og fræðslu 4u

Bjarni og Katrín í lopapeysum

Ráðgjöf og fræðsla 4u var stofnað af hjónunum Bjarna Rúnari Rafnssyni og Katrínu Ruth Þorgeirsdóttur. Fyrirtækið sameinar reynslu úr slökkviliði, sjúkraflutningum og björgunarstarfi við ráðgjöf og fræðslu þroskaþjálfa.

Við byggjum upp teymi reyndra leiðbeinenda sem deila sýn okkar á hagnýta fræðslu sem nýtist fólki í raun, hvort sem það er í skólanum, á vinnustaðnum eða heima.

Leiðbeinendur

Eigandi og stofnandi

Bjarni Rúnar Rafnsson

Slökkviliðsmaður, bráðatæknir, leiðbeinandi og fyrirlesari

Ég er menntaður slökkviliðsmaður og bráðatæknir og hef starfað á því sviði í að verða 30 ár.

Ég er leiðbeinandi í sérhæfðri endurlífgun (ALS og ILS), kenni fyrir Sjúkraflutningaskólann og hef til margra ára verið leiðbeinandi í skyndihjálp, fyrstu hjálp og sálrænni skyndihjálp.

Ég hef víðtæka reynslu úr björgunargeiranum af öllu sem tengist fyrstu hjálp, leit og björgun, rústabjörgun, sjóbjörgun og aðgerðastjórn, svo eitthvað sé nefnt, og mikla reynslu af sjúkragæslu á viðburðum, stórum sem smáum.

Ég hef sett upp námskeið og unnið námsefni, kennsluefni, verkefni og æfingar eftir þörfum hópa, til dæmis í endurmenntun heilbrigðisstarfsmanna. Í allri kennslu legg ég ríka áherslu á tengsla- og áfallamiðaða nálgun og sálræna skyndihjálp.

Eigandi og stofnandi

Katrín Ruth Þorgeirsdóttir

Ráðgjafarþroskaþjálfi, fyrirlesari og leiðbeinandi

Ég er menntaður þroskaþjálfi og hef starfað sem slíkur í mörg ár. Ég hef mikla reynslu af ráðgjöf til starfsfólks leik- og grunnskóla, nemenda og aðstandenda þeirra.

Ég hef unnið með fólki á öllum aldri, allt frá ungum börnum í leikskóla til eldra fólks, og í 16 ár starfaði ég við að styðja og styrkja fatlað fólk og einstaklinga sem hafa glímt við ýmsar áskoranir, svo sem geðrænar.

Ég vinn í anda þjónandi leiðsagnar, Heillaspora og sýnarinnar „Ekkert um okkur án okkar“, með tengsla- og áfallamiðaða nálgun að leiðarljósi. Sú hugmyndafræði mótar bæði ráðgjöfina og námsefnið sem ég bý til.

Ég held fyrirlestra og námskeið um hegðun, þroska og líðan fyrir skóla, foreldra og starfsfólk og hef sett upp námskeið og unnið námsefni, kennsluefni, verkefni og æfingar sem eru sniðin að þörfum hvers hóps. Ég er jafnframt leiðbeinandi í skyndihjálp og sálrænni skyndihjálp og menntaður aðgerðastjórnandi, og hef undanfarið dýpkað þekkingu mína á núvitund (mindfulness) og streitustjórnun.

Hafa samband

Pantið námskeið eða sendið fyrirspurn

Netfang[email protected]
FyrirtækiRáðgjöf og fræðsla 4u ehf.kt. 450722-1540